Steini Más
Sofandi rækjur

Sofandi rækjur

Stormur í vatnsglasi

Enn eimir af áhyggjum vegna kaupa erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi. Sumir eru hræddir um að þetta sé byrjunin á eitthverju slæmu og segja þetta ógna íslensku eignarhaldi á sjávarauðlindinni.

Sumir ganga svo langt að segja erlenda togara koma hérna, þurrausa miðin og sigla svo til “vondukallalands” með aflann.

Svo að það sé á hreinu mega íslenskar útgerðir “moka upp fiski” og sigla með hann hvert sem er án þess að taka land á Íslandi og gerðu einu sinni töluvert af því að landa í erlendum höfnum.
Íslenskar útgerðir mega vera með erlenda sjómenn um borð enda í gildi samningar sem heimila fólki innan EES að starfa hér á landi.

Ástæðan fyrir því að þetta er ekki gert nema í örlitlum mæli er að það er ekki hagkvæmt. Og ástæðan fyrir því að langfestir sjómenn eru íslenskir er að þeir eru góðir í því sem þeir gera án þess að ég sé að gera lítið úr erlendum sjómönnum. (það er t.d. nokkuð um Pólverja í áhöfnum íslenskra skipa og þeir þykja ekkert verri starfsmenn svo því sé haldið til haga)


Mér finnst hins vegar fagnaðarefni að erlendir fjárfestar sjái sér hag í því að fjárfesta, undir ströngu regluþaki í íslenskum sjávarútvegi eins og gerðist með Storm Seafood. Þessi viðskipti sýna tiltrú erlendra aðila á íslenskum sjávarútvegi. Erlendu hluthafarnir eru þarna sem fjárfestar og veðja fjármagni sínu á íslenska útgerðarmenn, sjómenn og landvinnslufólk.

Við eigum ekki að vera hrædd við erlenda aðila þegar kemur að fjárfestingum í íslenskum sjávarútvegi. Í fyrsta lagi gilda reglur um eignarhald erlendra aðila á kvóta. Í öðru lagi má hver lögaðili ekki eiga meira en 12 % af heildar aflamarki og svo síðast en ekki síst erum við fullkomlega fær um að keppa við hvern sem er þegar kemur að veiðum og vinnslu.Horfum bara til Noregs þar sem íslenskir smábátsjómenn voru að slá aflamet og það á bátum sem smíðaðir voru og þróaðir á Íslandi. Einnig er íslenska fyrirtækið Samherji er orðið eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu svo dæmi séu tekin.


Við skulum frekar fagna því að enn séu til útlendingar sem treysti Íslendingum til að ávaxta peningana sína.

Hvort á ég að skammast mín eða ekki? 
En að öllu sprelli sleppt.  Hver stendur á bak við þessa herferð? 

Hvort á ég að skammast mín eða ekki? 

En að öllu sprelli sleppt.  Hver stendur á bak við þessa herferð? 

Um mikilvægi hlutanna

Ég rak augun í ágæta grein eftir ritstjóra Fréttablaðsins þar sem hann fjalla m.a. um hversu mikið pláss sjávarútvegur og landbúnaður fær í umræðunni um hugsanlega aðild Ísland að Evrópusambandinu á kostnað annara mikilvægra greina.

Það má taka undir margt í skrifum ritstjórans en gleymum því samt ekki að sjávarútvegurinn er og verður ein mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Enda er bara ekkert að því. Við erum góð í því að veiða og vinna fisk. Ekki bara góð heldur í fremstu röð hvað varðar gæði og hagkvæmni.
Ég er síst að gera lítið úr öðrum greinum en það er alveg skiljanlegt að sjávarútvegurinn fái stóran sess í umræðunni þegar kemur að evrópumálum.

Það er heldur ekki rétt að sjávarútvegurinn sé eingöngu “gömul frumvinnslugrein”
Innan geirans starfar stór, fjölbreyttur hópur fólks, allt frá togarjöxlum upp í sprenglærða vísindamenn. Enda hafa mörg spennandi fyrirtæki sprottið upp í skjóli sjávarútvegsins.
Marel, 66° norður, Marorka og Bakkavör eru dæmi um fyrirtæki sem spruttu upp og urðu að alþjóðlegum fyrirtækjum sem skipta þjóðarbúið miklu máli.

Ég er líka ósammála því að mestu vaxtatækifærin liggi ekki innan sjávarútvegsins. Þar liggja einmitt gríðarleg tækifæri. Það liggja fyrir krefjandi verkefni í orku og umhverfismálum þegar kemur að útveginum og með aukinni samkeppni fá Asíu og fleiri stöðum þarf útvegurinn á okkar hæfasta fólki að halda í baráttunni um markaði.
Sjávarútvegur er ekki bara fiskur á öngli og belgvetlingar.Þetta er keðja af hæfileikaríku fólki með þekkingu, menntun og reynslu sem gerir hvað mest úr einni mikilvægust auðlind okkar Íslendinga.

Annar góður maður, Guðmundur Gunnarsson segir að skapa verði 20.000 störf á næstu árum en ekki í sjávarútvegi!
Það skiptir gríðarlega miklu málið að skapa einmitt fleiri, fjölbreytt störf í kringum sjávarútveginn og þess vegna óskiljanlegt Guðmundur undanskilji sjávarútveginn í kalli sínu eftir störfum.

Íslendingar eiga að horfa meira til sjávarútvegsins þegar kemur að nýsköpun, sprotafyrirtækjum og einstakri þekkingu.
Með fullri virðingu fyrir öðrum greinum sem auðvitað erum mikilvægar er sjávarútvegurinn hvað mikilvægastur. Það er þess vegna nauðsynlegt fyrir Ísland að vel takist til við samningagerðina og enn mikilvægara að hæfileikaríkt fólk haldi áfram að velja sjávarútveginn sem sinn starfsvettfang
Sjávarútvegurinn er okkar tromp enda erum við þekkt um allan heim fyrir framúrskarandi vöru og tækni

Ég vil enda þetta á að hvetja alla til að kynna sér sjávarútveginn og vona að hagsmunaaðliar og áhugafólk um útveginn fari að eyða meira púðri í að fjalla um jákvæðu hliðar útvegsins, möguleikana og framtíðina

Búúú-húú

“Þær eru þungar, byrðarnar sem lagðar eru á Íslendinga” sagði ónefnd þingkona þegar hún var að tala um Icesave.
 
Togarasjómaður skrifaði tárvota grein um hversu erfið sjómennskan væri og fólk ætti að kynna sér hvers lags vítis-vist þetta væri áður en það færi að tjá sig um málið
 
Ungur samkynhnegður strákur talaði um mannréttindabrot þegar honum var meinað að gefa blóð.
 
Tökum þetta lið fyrir þið.
 
Icesave er ömurlegt en í hnattfræðilegu samhengi er þetta ekki neitt (hvort sem við borgum eða ekki) Það eru byrðar að horfa á börnin sín deyja úr niðurgangi eða horfa upp á foreldra sína drepna vegna stjórnmálaskoðana

Sjómennska er fín vinna, Stundum erfið, stundum létt. Þessi grein hefði átt rétt á sér um 1900 þegar sjómenn fórust umvörpum og nutu ekki sjálfsagðra réttinda eins og hvíldartíma og öryggisreglna

Það er asnalegt að samkynhneigðir meigi ekki gefa blóð en hefur lítið að gera með grunndvallar mannréttindi. Þessu þarf að breyta en óþarfi að fríka út.

Við minnsta mótlæti missum við okkur og tölum um vosbúð, erfiðleika, byrðar og mannréttindi.
Íslendingar eru ein ríkasta þjóð í heimi þrátt fyrir Icesave

Íslenskir sjómenn búa eitthvað það besta öryggi og aðbúnað í sem fyrirfinnst í stéttinni

Ísland er og á auðvitað að vera eitt besta land í heimi þegar kemur að réttindum samkynhneigðra

Látum Lúkas og VIP partý-píurnar um dramatíkina. Slökum á og verum hress

Það er hollt að taka strætó þó maður spari ekki milljónir. Ég biðst afsökunar ef farið er með rangar tölur og ég er heldur ekki að gera lítið úr Heima-eróbikki. 

Barn: “Mamma ég vill Bling tennur eins og allir hinir krakkarnir á leikskólanum” 
Mamma: “Ekkert mál vina. Þetta hlítur að vera gott stöff fyrst þetta er selt í sjálfsala við hliðina á smokkum og spilakössum”

Barn: “Mamma ég vill Bling tennur eins og allir hinir krakkarnir á leikskólanum” 

Mamma: “Ekkert mál vina. Þetta hlítur að vera gott stöff fyrst þetta er selt í sjálfsala við hliðina á smokkum og spilakössum”

Heljarmennið Jónas í Æðey kveður

Eitt sinn lenti ég í því að missa skrúfu af bát 12 sjómílur norður af Hælavíkurbjargi. Enginn bátur var á svæðinu en töluvert sunnar var Jónas nokkur í Æðey og sonur að ferja fólk á Hornstrandir. Gæslan kallaði hann upp og þeir feðgar ekki lengi að renna til okkar og drógu okkur í land. 

Stuttu seinna fór ég í ríkið til að launa greiðann eins og sjómanna er siður en vissi ekki hvað Jónasi þótti brúklegt. Ég stend við hilluna og segi upphátt “Hvað ætli Jónasi í Æðey þyki gott fá sér?” 

Heyri ég þá hvar annað heljarmenni ræskir sig fyrir aftan mig og segir “Ég hef nú skálað við bóndann í Æðey og ef þú ætlar vikilega að gera hann glaðan mundi ég færa honum Ákavíti” 

Var þar kominn Sverrir Hermansson Fyrrv. bankastjóri. 

Það stóð svo heima þegar ég færði Jónasi flöskuna og þakkaði honum kærlega fyrir hjálpina. 

Mynd: Pálmi Bjarnason 

Hér er hugmynd Ísbjarnarlovers

Grænlenska heimastjórnin “fær” árlega ísbjarnarkvóta sem þeir meiga fella í sátt við guð og menn. 

Þegar Ísbirnir ganga á land á Íslandi er tekin upp síminn og hringt vestur í frændur okkar og sagt. “Við viljum kaupa eitt dýr af kvótanum ykkar” 

Grænlendingar gefa upp reiknisnúmer og kennitölu, strika eitt dýr út af kvótanum sínum og við fellum bangsa. 

Allir græða. Við “björgum” einu dýri frá því að verða grænlenskum byssum að bráð. Grænlendingar fá peninga sem þeir svo nota til að kaupa brennivín og örmagna ísbjörn er sendur til forfeðra sinna og þarf því ekki að búa í 60 fermetra kitru í Laugardalnum sem er vanvirðing við eitt vígalegasta rándýr jarðar.

Málið dautt

ég er farin að halda að “Get thin quick scam’s” sé elsta atvinnugrein í heimi

ég er farin að halda að “Get thin quick scam’s” sé elsta atvinnugrein í heimi

Snillingurinn Siggi Steini benti mér á þetta. 

Snillingurinn Siggi Steini benti mér á þetta. 

Mikið væri gaman að vita hvað gerðist seinna þetta kvöld… 

Mikið væri gaman að vita hvað gerðist seinna þetta kvöld… 

Pròfa tumblr

Pròfa tumblr

“Sagði mamma ykkar að kjötið kæmi af trjánum?”

“Sagði mamma ykkar að kjötið kæmi af trjánum?”